Þá sé ég þig - Lag og texti: Lára Ómarsdóttir.
Автор: Lara Omarsdottir
Загружено: 2021-11-10
Просмотров: 4646
Описание:
❤
Þá sé ég þig
Lag, texti og söngur: Lára Ómarsdóttir
Upptökustjórn: Jón Ólafsson
Trommur: Ólafur Hólm
Bassi: Guðni Finnsson
Gítarar: Stefán Már Magnússon
Gítarsóló: Haukur Lár Hauksson
Hljómborð, raddir og slagverk: Jón Ólafsson
Upptökur og útsetning: Jón Ólafsson
Hljóðblöndun: Jón Ólafsson & Albert Finnbogason
Mastering: Albert Finnbogason
Hljóðupptökur fóru fram í Eyranu í október 2021 ❤
Myndband: Stefán Drengsson
Myndbandsupptökur fóru fram í Reykjavík haustið 2021.
Innilegar þakkir fá öll sem tóku þátt og gerðu þetta að veruleika.
Þá sé ég þig - texti
Fortíðarskuggar, angist og skelfing
skynsemi hrekja á braut.
Svífandi í andrými svartsholsins hvelfing
svekkir mjög sú lífsins þraut.
Á fjallstindi óttans ég festist í sefi
í fyrndinni er allt svo illt.
Stokkbólgin, grátandi, gnístandi efi
í gærdeginum er ég villt.
Þá sé ég þig
úr þokunni gengur þú nær mér
með þögninni segir mér allt.
Brosandi breiðir út faðminn
og býður mér nær þér.
Býður mér heiminn og hamingjuna
hundraðfallt.
Ráfandi í myrkri og móðu um heiminn
og man ekki að lífið er nú.
Söknuð og sorgir í hjarta mér geymi
þær sefað getur aðeins þú.
Í huga mér blindni og bölvun þess gamla,
birtunnar næ ekki til.
Rökkur og reimleikar lífinu hamla
ég rogast með niðdimman hyl.
Þá sé ég þig
úr þokunni gengur þú nær mér
með þögninni segir mér allt.
Brosandi breiðir út faðminn
og býður mér nær þér.
Býður mér heiminn og hamingjuna
hundraðfallt.
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: