Stórkostlega - Despacito - Icelandic version
Автор: Lara Omarsdottir
Загружено: 2017-07-06
Просмотров: 26405
Описание:
Stórkostlega (Despacito)
https://m.facebook.com/story.php?stor...
This is an Icelandic version/Cover of Despacito - Justin Bieber – Despacito (Lyrics) ft. Luis Fonsi & Daddy Yankee. Icelandic lyrics by Lara Omarsdottir - I do not own the copyright of the song.
Stórkostlega (Despacito) - Lyric/texti Lára Ómarsdóttir
Fonzi
Sko, þegar ég sá þig langfyrst gerðist eitthvað undravert,
hjartað tók smá kipp og hamaðist.
Þá, vildi í þig ná og strjúka blíðlega á þér holdið bert
ást mín á þér opinberaðist.
Bieber
Komdu hérna aðeins nær mér,
ég vil sitja í fanginu á þér
og allar aðstæður mínar verða einfaldar.
Þú ert,
mín sólarupprás um svartan dag,
sæla og unaður er þitt fag,
færð mig til að vilja muna hvert andartak.
Þú ert gerður eins og bara fyrir mig,
mætti halda að ég ein ætti þig,
þegar þú talar vil ég bara heyra í þér,
vil að allir aðrir fari.
Þú
þú hefur þessi áhrif á mig nú,
að mig langar mest að fríka út
og hlaupa brjáluð eins og beljurnar á vorin.
Ég
ég er ekki von að vera sú
sem vonast eftir kærleika og trú
heldur hræðist miklu frekar ástarsporin.
Stórkostlega
Komdu hér og kysstu mig nú stórkostlega.
Leyfðu mér að faðma þig mjög ákaflega,
ég skal vera góð við þig í kvöld, klárlega.
Stórkostlega
Strjúktu mér og faðmaðu mig stórkostlega.
Hvíslaðu í eyrað á mér mjög gróflega.
Við getum farið alla leið og alla vega.
Komdu, komdu gæskur, komdu og vertu hérna hjá mér.
Komdu og haltu í höndina á mér,
leyfðu mér að vera hjá þér.
Ég geri næstum hvað sem er ef þú vilt vera með mér.
Ég skal sitja í faðmi þínum og leyfa þér að vera í mínum.
Rapp
Þú ert hasarkroppur, hot og æsandi.
Ég er orðin fræsandi
og langar bara að splæsa á þig
og fara síðan uppá þig.
Við getum farið heim til þín og gert bara bamm bamm,
Drukkið smá af brennivíni og gert meira bamm bamm.
Kúrað síðan saman inni á herbergi og baði.
Kúrað fram á morgun og kúrað líka með hraði.
Verið öllum stundum saman, gert það úti í horni,
gert það hvar sem er að kvöldi og að morgni.
Og aftur og aftur,
Ó! sá náðarkraftur!
Njótum saman lífsins, ó! gæskur, ó! gæskur
Látum okkur dreyma, ferðumst yfir höfin,
ferðumst þar sem alsælan á öllum stundum heima.
Ó! aftur og aftur
Ó! sá náðarkraftur!
Ferðumst aðeins meira, ferðumst miklu dýpra,
ferðumst yfir fjöllin blá og dalina og fleira.
Stórkostlega
Komdu nú og kysstu mig nú stórkostlega.
Komdu hér og haltu mér mjög ákaflega,
ég skal gera hvað sem er í kvöld, klárlega.
Stórkostlega
Strjúktu mér og faðmaðu mig stórkostlega.
Hvíslaðu í eyrað á mér mjög gróflega,
við getum farið alla leið og alla vega.
Komdu, komdu gæskur, komdu og vertu hérna hjá mér.
Komdu og haltu í höndina á mér
og leyfðu mér að vera hjá þér.
Ég geri næstum hvað sem er ef þú vilt vera með mér,
ég skal sitja í faðmi þínum og leyfa þér að vera í mínum.
Stórkostlega
Svona gera Íslendingar stórkostlega,
kyssa, kela og kúra alltaf ákaflega
og gera hvað sem er alla daga, gróflega.
Og aftur og aftur,
Ó! sá náðarkraftur!
Njótum saman lífsins, ó! gæskur ó! gæskur
Látum okkur dreyma, ferðumst yfir höfin,
ferðumst þar sem alsælan á öllum stundum heima.
Ó! aftur og aftur,
Ó! sá náðarkraftur!
Njótum saman lífsins, ó! gæskur ó! gæskur!
Ég skal sitja í faðmi þínum og leyfa þér að vera í mínum,
Stórkostlega!
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: