#112
Автор: mbl.is
Загружено: 2026-02-20
Просмотров: 1150
Описание:
Jafnt og þétt leggst losunarkerfið ETS með þyngri hætti á íslenskt viðskiptalíf. Innan fárra ára mun kostnaður Icelandair við kerfið margfaldast. Hvaða áhrif mun það hafa?
Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum dagsins en Frosti Sigurjónsson, höfundur bókarinnar Hitamál og Ragnar S. Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða ETS-kerfið og hugmyndafræðina á bak við það í þættinum.
Rýnt í fréttir vikunnar
Í fréttum vikunnar er rætt við þau Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, stærsta stéttarfélags Landsins, og Frosta Logason, stjórnanda Brotkastsins.
Þar ber margt á góma, málefni Andrésar Mountbatten, fyrrum prins og bróður Karls III Bretakonungs, ný ályktun ASÍ um erfiða stöðu í efnahagsmálum þjóðarinnar og framganga dr. Arnars Eggerts Thoroddsen í kennslustund í Háskóla Íslands þar sem hann spurði unga nemendur hvort þeir hygðust ekki ábyggilega „taka af lífi“ nafngreinda menn úr íslenskum fjölmiðlum.
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: