#527
Автор: Ein Pæling
Загружено: 2026-02-17
Просмотров: 4526
Описание:
Þórarinn ræðir við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar.
Rætt er um umdeilt mál sem nú er rætt á þinginu um tengingu almannatrygginga við vísitölu neysluverðs, vinnusiðferði ungs fólks, öryrkja, kjarasamninga, verðbólgu, vextina, sleggjuna, nýju stjórnarskránna og aðildaviðræður við Evrópusambandið.
Kristrún segir að plani haldi þrátt fyrir verðbólgumælingar. Hún segir gagnrýni á frumvarp ríkisstjórnarinnar um almannatryggingar eiga rétt á sér en að hún sé byggð á röngum forsendum og misskilningi á innihaldi frumvarpsins. Hún hefur ekki áhyggjur af því að frumvarpið muni hafa áhrif á vinnusiðferði en segist samt hafa áhyggjur af ákveðnum þáttum í þeim efnum.
Hún segist vilja ganga í Evrópusambandið ef að þóknanlegur samningur liggi á borðinu. Hún segir að breytt staða í heimsmálunum hafi hreyft við henni og að mikilvægt sé að eiga umræðu um aðildarviðræður þegar að þjóðin veit um hvað verði kosið.
Í lok þáttarins er rætt um hvort að Pétur Marteinsson hafi verið síðasti hnykkurinn í yfirtöku nýju Samfylkingarinnar á flokknum.
Afhverju mætir Kristrún ekki til Stefáns Einars?
Var Pétur Marteinsson síðasti naglinn í líkkistu gömlu Samfylkingarinnar?
Mun vísitölutenging bóta hafa áhrif á vinnusiðferði á Íslandi?
Þessum spurningum er svarað hér.
Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:
www.pardus.is/einpaeling
eða
Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:
Rkn. 0370-26-440408
Kt. 4404230270
Samstarfsaðilar:
Poulsen
Happy Hydrate
Bæjarins Beztu Pylsur
Alvörubón
Fiskhúsið
Drifa.is
Palssonfasteignasala.is
Heitirpottar.is
Hrafnadalur.is
Harðfiskur (kynningartilboð):
500g - 7.500 ISK
1 kg - 14.000/kg - Heimsent
2 Kg - 13.000/kg - Heimsent
4 kg - 12.000/kg - Heimsent
Pantið með því að senda email á [email protected]
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: