Frostrósir - Íslensku Jólin // Guðrún Árný, Guðrún Gunnars, Ragga Gröndal & Vala Guðna // Live, 2011
Автор: ragnaur
Загружено: 2026-01-26
Просмотров: 58
Описание:
Source: Frostrósir – 10 Ára DVD
Recoreded December 04, 2011
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Songs:
HÁTÍÐ FER AÐ HÖNDUM EIN
lag: Íslenskt þjóðlag
texti: Þjóðvísa (1. erindi) / Jóhannes úr Kötlum
Hátíð fer að höndum ein,
hana vér allir prýðum.
Lýðurinn tendri ljósin hrein,
líður að tíðum.
Líður að helgum tíðum.
Gerast mun nú brautin bein
bjart í geiminum víðum.
Ljómandi kerti á lágri grein,
líður að tíðum.
Líður að helgum tíðum.
JÓLAKVÆÐI
lag: Jórunn Viðar
texti: Þjóðvísa
Það á að gefa börnum brauð
að bíta í á jólunum,
kertaljós og klæðin rauð
svo komist þau úr bólunum,
væna flís af feitum sauð,
sem fjalla gekk á hólunum.
Nú er hún gamla Grýla dauð,
gafst hún upp á rólunum.
Nú er hún gamla Grýla dauð,
gafst hún upp og
gafst hún upp og
gast hún upp á rólunum
JÓLAKÖTTURINN
lag: Ingibjörg Þorbergs
texti: Jóhannes úr Kötlum
Þið kannist við jólaköttinn,
sá köttur var gríðarstór.
Fólk vissi ekki hvaðan hann kom
eða hvert hann fór.
Hann glennti upp glyrnurnar sínar,
glóandi báðar tvær.
Það var ekki heiglum hent
að horfa í þær.
Hann lagðist á fátæka fólkið,
sem fékk enga nýja spjör
fyrir jólin og baslaði og bjó
við bágust kjör.
Frá því tók hann ætíð í einu
allan þess jólamat
og át það svo oftast nær sjálft,
ef hann gat.
Þvi var það að konurnar kepptust
við kamba og vefstól og rokk,
og prjónuðu litfagran lepp
eða lítinn sokk.
Því kötturinn mátti ekki koma
og krækja í börnin smá
Þau urðu að fá sína flík
þeim fullorðnu hjá.
Og er kveikt var á jólakvöldið
og kötturinn gægðist inn,
stóðu börnin bísperrt og rjóð,
með böggulinn sinn.
Sum höfðu fengið svuntu
og sum höfðu fengið skó,
eða eitthvað, sem þótti þarft,
en það var nóg.
NÓTTIN VAR SÚ ÁGÆT EIN
lag: Sigvaldi Kaldalóns
texti: Séra Einar Sigurðsson í Eydölum
Nóttin var sú ágæt ein,
í allri veröld ljósið skein,
það er nú heimsins þrautarmein
að þekkja hann ei sem bæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
Lofið og dýrð á himnum hátt,
honum með englum syngjum þrátt.
Friður á jörðu og fengin sátt,
fagni því menn sem bæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: