Bati góðgerðarfélag kynnir Batahús og Breathwork öndunartækni
Автор: Landssamtökin Geðhjálp
Загружено: 2024-03-21
Просмотров: 131
Описание:
Geðhjálp stendur fyrir fræðsludagskrá um geðheilbrigðismál í vetur. Erindin eru haldin í sal Hlutaverkaseturs í Borgartúni 1, 105 Reykjavík kl. 20 og fara fram einn þriðjudag í mánuði, auk þess sem þau eru einnig í beinu streymi á Facebook síðu Geðhjálpar.
Fimmta fræðsluerindi vetrarins var haldið 19. mars þar sem Agnar Bragason og Guðrún Ebba Ólafsdóttir, forstöðumenn Batahúsanna, og Theódór Gunnar Smith öndunarleiðbeinandi héldu erindi um Batahús og breathwork.
Tilgangur Bata er að aðstoða þau sem hafa þurft að sæta réttargæslu við að komast út í samfélagið að nýju að lokinni afplánun með fræðslu, útvegun atvinnu og húsaskjóli. Bati rekur tvö Batahús, annað fyrir karla og hitt fyrir konur. Batahúsin er einstaklingsmiðað bataúrræði við enda afplánunar, unnið er með einstaklingum á jafningjagrundvelli út frá hugmyndum um áfallamiðaða nálgun.
Eitt af megin markmiðum Batahúsanna er að skapa aðstæður þannig að einstaklingur geti beint sjónum sínum frá neyslu og afbrotum og að sjálfsstyrkingu, vinnu, námi og samfélagslegri virkni. Aðstæður eru skapaðar með virðingu og kærleik að leiðarljósi.
Öndunartækni (e. Breathwork) er sérsmíðuð til að vinna úr áföllum, sleppa tökunum á fortíðinni, fyrirgefa sjálfum okkur og öðrum. Eftir 15 mín af öndun erum við komin í dáleiðslu ástand þar sem við erum eins og svampar fyrir nýjum hugmyndum og höfum aðgang að undirmeðvitundinni þar sem margt sem við höfum byrgt inni í okkur leynist.
Frekari upplýsingar um fræðsludagskrá vetrarins er að finna á vefsíðu Geðhjálpar:
https://gedhjalp.is/fraedsludagskra-g...
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: