23. febrúar 1994: Söngvakeppnin hjá Hemma Gunn (með auglýsingum)
Автор: Túbusjónvarpið
Загружено: 2026-02-23
Просмотров: 48
Описание:
Morgunblaðið:
Söngvakeppnin hjá Hemma Gunn
Þrír lagasmiðir voru fengnir til að semja eitt lag hver og verður valið á milli þeirra í þættinum
SJÓNVARPIÐ KL. 20.40
Sjónvarpið tekur þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á þessu ári eins og undanfarin ár. Val á framlagi Íslands til keppninnar í Dyflinni fer þó fram með öðrum hætti en síðustu ár því að þessu sinni fer það fram í þætti Hemma Gunn. Þrír lagasmiðir voru fengnir til að semja eitt lag hver og í þættinum fæst úr því skorið hvert laganna keppir fyrir Íslands hönd í Dyflinni 30. apríl næstkomandi. Valið verður í höndum dómnefndar sem skipuð er fagfólki bæði úr þéttbýli og af landsbyggðinni. Aðalgestur Hemma er Valgeir Guðjónsson, sem hefur tvísvar átt sigurlag í keppninni hér heima, og auk þess koma í þáttinn gestir sem tengst hafa söngvakeppninni.
(Þetta efni er birt í þágu sögulegrar varðveislu, rannsókna og fræðslu. Allur höfundarréttur og tengd réttindi eru í eigu viðkomandi rétthafa, svo sem framleiðenda, sjónvarpsstöðva eða annarra upprunaaðila. Enginn hagnaður er tekinn af birtingu efnisins og er það ekki birt í auglýsingaskyni.)
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: