Bjartmar og Bergrisarnir - Leiðin heim
Автор: Berglind Bjartmarsdóttir
Загружено: 2013-06-13
Просмотров: 25935
Описание:
Goslokalag 2013 - Klipping: Magnús Ómarsson
Manstu elsku ástin,
manstu vorkvöldin í eyjum,
manstu þegar við við vorum rótarlaus börn?
Við fundum hvort annað
í faðmlagi lífsins
á Brúnklukkuveiðum
útí Vilborgartjörn.
Manstu elsku ástin,
manstu sumarkvöldin forðum,
manstu þegar sólskinið svaf ekki dúr?
Og þau dönsuðu af gleði Kirkjubæjartúnin
og djúpboxin rokkuðu á Hressó og Búr.
Við sáum himininn loga
í janúarnóttinni, eldhraunið rann.
Yfir víkur og voga
þar byggðin brann.
Manstu elsku ástin,
manstu fyrsta kærleiks kossinn,
manstu þegar hausthúmið huldi okkar spor?
Og hann lýsti upp brosið þitt Urðarvitablossinn
örvaði lífið og æskunnar þor.
Við sáum himininn loga
í janúarnóttinni, eldhraunið rann.
Yfir víkur og voga
þar byggðin brann.
Manstu elsku ástin,
manstu vorkvöldin í eyjum,
manstu þegar við við vorum rótarlaus börn?
Við fundum hvort annað
í faðmlagi lífsins
á Brúnklukkuveiðum
útí Vilborgartjörn.
Við sáum himininn loga
í janúarnóttinni, eldhraunið rann.
Yfir víkur og voga
þar byggðin brann.
Við sáum jörðina loga,
hraunglóðið yfir byggðina óð.
Skóp nýja kletta og boða
yfir forna slóð.
Við sáum himininn loga
í janúarnóttinni, eldhraunið rann.
Við fundum vonina vakna
í hjörtum tveim og leiðina heim,
leiðina heim, leiðina heim, leiðina heim.
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: