Eva María Þórarinsdóttir Lange Textað
Автор: FKA - FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Загружено: 2026-02-03
Просмотров: 16
Описание:
Viðurkenningarhátíð FKA 2026 // Eva María Þórarinsdóttir Lange FKA viðurkenning 2026
Stórglæsileg Viðurkenningarhátíð FKA 2026 - Húsfylli og mikill hátíðleiki.
Eva María Þórarinsdóttir Lange, stofnandi og framkvæmdastjóri Pink Iceland, Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, utanríkisráðherra og forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, voru heiðraðar á Viðurkenningarhátíð Félags kvenna í atvinnulífinu.
Árlega heiðrar Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, konur með veitingu FKA Viðurkenningarinnar, Hvatningarviðurkenningar FKA og Þakkarviðurkenningar FKA. Viðurkenningarhátíðin fór fram miðvikudaginn 28. janúar á Hótel Reykjavík Grand þar sem fjöldi gesta úr atvinnulífi og samfélagi kom saman og fagnaði viðurkenningarhöfum ársins.
Fjöldi tilnefninga og vandasamt val
Tilnefningar bárust víðs vegar að af landinu og fór dómnefnd yfir rúmlega eitt hundrað tilnefningar í öllum flokkum. Ljóst var að úr vöndu var að ráða, enda margar konur sem hafa lagt sitt af mörkum til öflugra atvinnulífs og betra samfélags.
Í dómnefnd sátu Benedikt Gíslason, Davíð Stefánsson, Isabel Alejandra Díaz, Rannveig Grétarsdóttir, Rán Flygenring og Þuríður Aradóttir Braun, formaður dómnefndar og stjórnarkona FKA.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra flutti erindi á hátíðinni og Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, stýrði dagskrá kvöldsins. Mikill fögnuður ríkti í salnum þegar viðurkenningarhafarnir voru klappaðir upp á svið.
FKA Viðurkenningin 2026 // Eva María Þórarinsdóttir Lange – Pink Iceland
Eva María Þórarinsdóttir Lange hlaut FKA Viðurkenninguna 2026 fyrir framúrskarandi frumkvöðlastarf í ferðaþjónustu og jafnréttismálum. Sem stofnandi og framkvæmdastjóri Pink Iceland hefur hún byggt upp alþjóðlega viðurkennt fyrirtæki sem hefur skapað verðmæti fyrir íslenska ferðaþjónustu og haft áhrif langt út fyrir eigin rekstur.
Undir hennar forystu hefur Pink Iceland haft veruleg áhrif á íslenskt atvinnulíf og ímynd Íslands á alþjóðavettvangi. Eva María hefur verið öflug talskona jafnréttis og fjölbreytileika og skapað nýtt rými fyrir konur og hinsegin einstaklinga í atvinnulífinu. Hún er skýr fyrirmynd í frumkvöðlastarfi, forystu og samfélagslegri ábyrgð.
Hvatningarviðurkenning FKA 2026 // Erna Magnúsdóttir – Ljósið
Erna Magnúsdóttir hlaut Hvatningarviðurkenningu FKA 2026 fyrir athyglisvert frumkvæði og nýsköpun í þjónustu og samfélagslegum rekstri. Sem stofnandi og framkvæmdastýra Ljóssins hefur hún byggt upp einstaka endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Starfsemi Ljóssins hefur haft djúpstæð áhrif á líf þúsunda einstaklinga og er í dag órjúfanlegur hluti af íslensku velferðarkerfi. Forysta Ernu einkennist af hlýju, seiglu og skýrri framtíðarsýn, og hún hefur sýnt í verki hvernig frumkvæði einstaklings getur skapað varanleg samfélagsleg áhrif og um leið mikilvægan stuðning inn í atvinnulífið.
Þakkarviðurkenning FKA 2026 // Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlaut Þakkarviðurkenningu FKA 2026 fyrir ævilangt og áhrifamikið framlag til stöðu kvenna, forystu og samfélagslegrar framþróunar. Hún hefur gegnt lykilhlutverkum í íslensku samfélagi sem borgarstjóri Reykjavíkur, utanríkisráðherra og síðar á alþjóðavettvangi.
Ingibjörg Sólrún hefur alla tíð verið óhrædd við að beita rödd sinni fyrir mannréttindum, jafnrétti og lýðræði og skapað rými fyrir konur til þátttöku, áhrifa og ábyrgðar. Með forystu sinni hefur hún rutt brautina fyrir heilar kynslóðir kvenna og lagt ómetanlegt ævistarf í þágu jafnréttis og samfélagslegrar ábyrgðar.
Félag kvenna í atvinnulífinu FKA óskarviðurkenningarhöfum innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu. FKA vill koma á framfæri sérstöku þakklæti til allra sem tilnefndu konur í flokkunum þremur og öllum gestum og þeim sem komu að hátíðinni á einhvern hátt.
Festi er aðalstyrktaraðili FKA, Eik fasteignafélag bættist í hópinn sem og Blue Lagoon Skincare þegar þessi Hátíð var haldin.
Líkt og undanfarin ár kom úr stórglæsilegt sérblað á degi Viðurkenningarhátíðar FKA sem gefið er út af Árvakri.
Myndbönd á Hátið gerð af mbl.
Takk fyrir ykkur öll!
Innilega til hamingju með daginn!
#FKAkonur #Hreyfiafl #Sýnileiki #Tengslanet #FKAviðurkenningarhátíð #HótelReykjavíkGrand @Festi @Eik fasteignafélag @Blue Lagoon Skincare @Árvakur @mbl
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: