5. janúar 1992: Svartur sjór af síld - Síldarævintýrin miklu á sjó og landi (3/3)
Автор: Túbusjónvarpið
Загружено: 2026-01-05
Просмотров: 78
Описание:
DV:
Í þessari heimildarmynd, sem er í þremur þáttum, segir Birgir Sigurðsson rithöfundur síldarsögu þjóðarinnar frá því Norðmenn hófu fjarðaveiðar sínar árið 1868 og þar til síldarstofninn hrundi einni öld síðar.
Síldarárin eru sveipuð ævintýraljóma. Þau voru stórbrotin og spennandi tímabil með umsvifamiklum framförum og afdrifaríkum kollsteypum í þjóðfélaginu. Síldin var nefnd silfur hafsins, bjargvættur þjóðarinnar, gull Íslands.
Hún gerði menn að milljónerum og beiningamönnum, reisti og rústaði bæi og byggðarlög, réð örlögum manna og efnahagslífi þjóðarinnar.
Birgir Sigurðsson rithöfundur samdi handritið að þáttunum og hafði umsjón með gerð þeirra en hann hefur sökkt sér niður í þessa heillandi sögu.
(Þetta efni er birt í þágu sögulegrar varðveislu, rannsókna og fræðslu. Allur höfundarréttur og tengd réttindi eru í eigu viðkomandi rétthafa, svo sem framleiðenda, sjónvarpsstöðva eða annarra upprunaaðila. Enginn hagnaður er tekinn af birtingu efnisins og er það ekki birt í auglýsingaskyni.)
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: