Rauða borðið 2. mars - Íran, skjánotkun barna, breskir græningjar og máttur sögunnar
Автор: Samstöðin
Загружено: 2026-03-02
Просмотров: 535
Описание:
Mánudagur 2. mars
Íran, skjánotkun barna, breskir græningjar og máttur sögunnar
Innrásarstríð Bandaríkjanna og Ísrael í Íran hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með heimsmálunum. María Lilja fær til sín þau Kjartan Orra Thorsson Miðausturlandafræðing og sérfræðing í málefnum Íran, Anahita Babaei aðgerðarsinna frá Íran og Magneu Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðing til að ræða stöðuna. Það getur reynst dýrkeypt friðarstund að rétta barni Ipad eða síma til að foreldri fái örlitla pása til að sinna verkum sínum. Þetta segir Jóhann Ingi Óskarsson, íbúi í Eyjum. Í samtali við Björn Þorláks ræðir hann rafræna fjölskylduharmleiki. Green party unnu frækinn sigur í aukakosningum í Gorton og Denton kjördæmum Manchester í síðustu viku og hrepptu þar með sæti Verkamannaflokksins sem hefur sjaldan verið óvinsælli. Guðmundur Auðunsson, heiðursfréttaritari Samstöðvarinnar í Englandi ræðir sigur vinstrisins við Maríu Lilju. Íslendingar mættu huga meira að sögunni er kemur að hugsun og markaði, huga þarf að framgangi mjúkra innviða ekki síður en hinna hörðu. Þetta segir Karl Pétur Jónsson. Hann segir okkur geta lært af Suður-Kóreu. Björn Þorláks ræðir við hann.
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: