Hluthafaspjallið | S02E36 | Ástand og horfur í hagkerfinu með Þórði Pálssyni | Þátturinn í heild
Автор: Brotkast
Загружено: 2025-11-21
Просмотров: 158
Описание:
Vaxtahaukurinn Þórður Pálsson, fjárfestingastjóri Sjóvár, fer yfir ástand og horfur í íslenska hagkerfinu í Hluthafaspjallinu með Sigurði Má Jónssyni í dag. Seðlabankinn lækkaði vexti eins og Þórður hafði spáð þó hann segist ekki hrifinn af ástæðu þess. En hver er staðan í íslenska hagkerfinu í dag? Er ástæða til þess að hafa áhyggjur af framvindunni? Þórður fer yfir aðdraganda þess að við erum komin í þá stöðu sem við erum í en þar verður að horfa á hagstjórn undanfarinna ára þar sem meðal annars voru gerð alvarleg mistök í Covid-aðgerðum fyrri ríkisstjórnar. Erum við að fá harða lendingu í hagkerfinu og af hverju höfum við leyft velsældarsjúkdómum að grassera í orkumálum þjóðarinnar? Þórður hlífir ekki núverandi ríkisstjórn og segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með Viðreisn og segir hugmyndir um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna ESB glórulausar. Við ræðum sameiningar fjármálafyrirtækja og rekstrarkostnað eignastýringarfyrirtækja og hvort það sé hætta á stagflation, að hagkerfið dragist saman um leið og verðbólga geysir?
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter.
Fylgdu okkur á Facebook: / brotkast.is
Fylgdu okkur á YouTube: / @brotkast_
Fylgdu okkur á Instagram: / brotkast.is
Fylgdu okkur á Twitter: / brotkasttv
Brotkast á vefnum: https://brotkast.is
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: