Fóstbræður HD: Gamall maður fylgir með
Автор: Fóstbræður HD
Загружено: 2025-06-23
Просмотров: 751
Описание:
Skets úr fyrsta þætti í annari seríu af Fóstbræðrum
Fóstbræður S02E01 - Gamall maður fylgir með
-
Ungt par leitar að íbúð án gamals fólks.
-
Sölumaður:
Og þetta er eldhúsið eins og þið sjáið. Það er rúmgott og snyrtilegt.
Kaupandi 1:
Já...
Sölumaður:
Já, já, já. Og ef þið viljið fylgja mér, þá er hérna glæsilegt anddyri.
Og svo auðvitað barnaherbergi – fyrir þá sem þurfa á því að halda bráðlega –
og svo salerni, nýlega flísalagt.
Og hér er stofan. Glæsileg og skemmtileg stofa. Ný teppalögð og skemmtileg.
Og svo er hér svefnherbergið. Það er að vísu ekki stórt,
en það er ótrúlegt hvað er hægt að gera með réttu litunum.
Kaupandi 2:
Fyrirgefðu…
Sölumaður:
Já?
Kaupandi 2:
Það er gamall maður hérna í stofunni.
Sölumaður:
Nei nei...
Kaupandi 1:
Já, það situr gamall maður í horninu á stofunni.
Sölumaður:
Nei… ég sé hann… sérðu hann ekki?
Kaupandi 2:
Jú.
Sölumaður:
Auðvitað. Við sjáum hann bæði.
Já, ég var alveg búinn að gleyma honum.
Kaupandi 1:
Líst ykkur ekkert á hann? Eða lýst okkur á hann?
Sölumaður:
Já, ég meina… þið voruð kannski að vonast eftir íbúð með gamalli konu eða?
Kaupandi 2:
Nei nei.
Sölumaður:
Sko… hann fylgir með.
En ég skal láta ykkur fá hann á hálfvirði – af því það eruð þið.
Kaupandi 1:
Við erum ekkert að leita að íbúð með gömlu fólki.
Sölumaður:
Nú? Eruð þið þá að leita að íbúð með ungu fólki?
Eruð þið pervertar?
Kaupandi 2:
Ha?
Kaupandi 1:
Nei, við erum bara að leita að íbúð fyrir okkur tvö.
Sölumaður:
Nú má þá enginn koma í heimsókn?
Heyrðu, komdu, þetta er að...
Kaupandi 2:
Nei.
Sölumaður:
Allt í lagi. Ég skal láta ykkur fá íbúðina með gamla manninum á fimm milljónir.
Kaupandi 1 og 2:
Við viljum ekki gamla manninn!
Sölumaður:
Fjórar og hálf.
Kaupandi 2:
Við viljum ekki gamla manninn!
Gamli maðurinn (úr horninu):
Já… góða nótt elskan.
Góða nótt.
Ahh… ég er þyrstur.
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: