Guðni Th.: Komið í Háskólann, við skulum hjálpa ykkur og þið sýnið okkur hvað þið getið
Автор: Háskóli Íslands - HI
Загружено: 2026-02-25
Просмотров: 11
Описание:
„Þetta eru forréttindi. Það er ekkert gefið að fá að fara í háskóla þannig að mér finnst líka svo mikilvægt að fólk átti sig á því að þetta er stór ákvörðun. Þú ert að taka þetta fyrir þig sjálfa/n en þú ert líka að skuldbinda þig gagnvart öðrum til þess að gera þitt besta. Og það er bara gaman. Það er gaman að gera sitt besta,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti Íslands. Guðni ræðir hér um gildi þekkingarinnar, háskólamenntunar og prófgráða frá háskólum en sjálfur státar hann af fimm slíkum, eins og vel þekkt persona úr íslenskri sjónvarpssögu.
Guðni bendir á að mikilvægi Háskólans felist í því að þar leitist fólk við að bæta samfélagið. „Við getum alltaf gert betur og erum alltaf að reyna að gera betur en við þurfum til þess stuðning og við þurfum til þess áhugasama, öfluga, flotta, kjarkmikla, frábæra nemendur. Þannig að komið í skólann, við skulum hjálpa ykkur og þið sýnið okkur hvað þið getið,“ segir hann enn fremur.
Повторяем попытку...
Доступные форматы для скачивания:
Скачать видео
-
Информация по загрузке: